Hefur fulla trú á sínum mönnum
Tindastóll tekur á móti Haukum í 1. deildinni á morgun á Sauðárkróksvelli og ljóst að breytingar verða á byrjunarliðinu. Ben og Theo eru farnir frá Tindastól en Donni þjálfari telur að fleiri séu ekki á förum frá liðinu í bili a.m.k. -Aðalsteinn fer í skóla 1. september og Dominic fer aftur til Bandaríkjana í skóla 18. Ágúst. þannig að hópurinn er að þynnast örlítið svona með tímanum en hann er hins vegar skipaður miklum fagmönnum, segir Donni.
-Það er alltaf vont að missa góða leikmenn og sérstaklega þar sem þeir hafa verið að skora mest fyrir okkur. Nú er þá bara komið að öðrum að taka við keflinu í markaskorun og ég hef fulla trú á þeim sem leikmönnum sem við höfum innan okkar raða til að ráða við það verkefni, segir Donni við brotthvarfi þeirra Ben og Theo og bætir við að þeir séu metnaðarfullir ungir leikmenn sem gaman verður að fylgjast með í framtíðinni.
-Við erum eðlilega að vinna að því að styrkja okkar lið aftur. Þessir leikmenn skilja eftir sig stór skörð í leikmannahópinn sem var ekki stór fyrir og við teljum okkur klárlega þurfa að bæta í hópinn aftur til þess að halda sömu gæðum í liðinu.
Donni telur að strákarnir þjappi sér saman og láti þetta ekki á sig fá en hefur þetta ekki áhrif á liðið? -Auðvitað hefur þetta áhrif en eins og sagt er "það skiptir ekki máli hversu oft þú ert sleginn niður, heldur hvernig þú kemur til baka eftir það". Við gerum allt sem við getum til að láta þetta ekki slá okkur útaf laginu.
Tindastóll situr nú í 4. sæti eftir 10 leiki en lítið má útaf bera því neðsta liðið í 12. sæti er aðeins fjórum stigum frá eða með 10 stig. Leikurinn á morgun leggst hins vegar mjög vel í Donna. -Haukaliðið er geysisterkt en það erum við líka. Ég hef fulla trú á mínum mönnum og veit að ef við náum toppleik og gefum okkur alla í þetta verkefni þá getum við náð góðum úrslitum. Stuðningurinn við liðið núna í síðasta heimaleik á móti Þrótti var alveg frábær. Yndislegt að sjá svona marga á vellinum og stuðningurinn hefur klárlega mjög mikið að segja fyrir okkur.
Ég vona að sem flestir sjái sér fært að mæta á völlinn á laugardaginn kemur þegar Haukar koma í heimsókn. Stöndum saman - allir sem einn. Áfram Tindastóll.