Hegranesið sigraði á Jólamóti Molduxa

Jólamót Molduxa í körfubolta fór fram annan dag jóla þar sem tólf lið tóku þátt í opna flokknum þrjú lið í 40+ og eitt kvennalið. Fór svo að Hegranesið stóð uppi sem sigurvegari í opna flokknum, Molduxar 2 í 40+ og stúlkurnar sem settar voru í riðil 40+ fengu sjálfkrafa pening um hálsinn.

Það voru mikil tilþrif sem sáust á fjölum íþróttahússins á Sauðárkróki þennan dag og greinilegt að allir voru komnir til að skemmta sér. Afrakstur mótsins sem að þessu sinni var 245þúsund rennur til körfuknattleiksdeildar Tindastóls.

Hér fyrir neðan er smá sýnishorn af stemningu dagsins.

.

Fleiri fréttir