Heiðursflokkur í fyrsta sinn á firmakeppni Stíganda

Firmakeppni hestamannafélagsins Stíganda fór fram sl. laugardag á Vindheimamelum. Á heimasíðu félagsins segir að veðrið hafi leikið um keppendur og áhorfendur og kaffið og kanilsnúðarnir hafi einnig farið vel í fólk, en bryddað var upp á þeirri nýbreytni bjóða upp á kaffi og snúða við hesthúsin og sleikjópinna fyrir krakkana.

Annað sem telst til nýjungaa var að  auk hefðbundinna verðlauna voru veitt aukaverðlaun af ýmsum toga.

Úrslitin voru eftirfarandi.

Pollaflokkur

  • 1. Björg Ingólfsdóttir og Þór frá Þverá og kepptu þau fyrir Hádranga ehf.
  • 2. Trausti Ingólfsson og Hnokki frá Hofsstöðum

Björg hlaut í aukavinning reiðtíma hjá Barböru Wenzl

Barnaflokkur

  • 1. Ingunn Ingólfsdóttir og Magni frá Dallandi  og kepptu þau fyrir Gestagarð Hofsstöðum
  • 2. Freyja Sól Bessadóttir og Litli-Blesi
  • 3. Guðný Rún Vésteinsdóttir

Ingunn hlaut í aukavinning reiðtíma hjá Arndísi Brynjólfsdóttur

Unglingaflokkur

  • 1. Ásdís Ósk Elvarsdóttir og Lárus frá Syðra-Skörðugili og kepptu fyrir Flugumýrahvamm
  • 2. Sonja Sigurgeirsdóttir
  • 3. Gunnar Freyr Gestsson og Flokkur frá Borgarhóli

Ásdís fékk reiðtíma hjá Mette Mannseth í aukavinning

Kvennaflokkur

  • 1. Unnur Sveinbjörnsdóttir og Morri frá Hjarðarhaga og kepptu þau fyrir Árgerði Sæmundarhlíð
  • 2. Jóhanna Karrbrand og Hekla frá Tunguhálsi 2
  • 3. Guðrún Margrét Sigurðardóttir og Ópera frá Brautarholti

Karlaflokkur

  • 1. Elvar Einarsson og Laufi frá Syðra-Skörðugili og kepptu þeir fyrir Starrastaði
  • 2. Gestur Stefánsson og Orgía frá Höskuldsstöðum
  • 3. Ingólfur Helgason og Þór frá Þverá

Heiðursflokkur í fyrsta sinn í firmakeppni Stíganda

  • 1. Þórey Helgadóttir og Tónn frá Tunguhálsi 2
  • 2. Vésteinn Vésteinsson

Þórey fékk gjafabréf á Lónkot

Vésteinn fékk gjafabréf á fótaaðgerð hjá Tánni

Fleiri fréttir