Heimir á ferð um Dalina

Karlakórinn Heimir gerði sér dagamun á laugardag og skellti sér í dagsferð vestur á Snæfellsnes og í Dalina og héldu tónleika í Stykkishólmskirkju og Árbliki í Dalabyggð. Á heimasíðu kórsins segir að áheyrendur hafi virst njóta tónleikanna í ræmur og fögnuðu vel.

Eftirfarandi ferðasaga er tekin af  heimir.is:
„Var nú haldið í Dalina um Álftafjörð og Skógarströnd þar sem birkið  og fjalldrapinn grær. Ekið var undir leiðsögn Ágústs Jónssonar 2.  tenórs sem er innfæddur Hólmari og vel kunnugur öllum staðháttum og  mannlífi á Ströndinni. Þegar svo ekið var yfir ána Skraumu á  sýslumörkum Dala og Snæfellsness tók svo innnmúraður Daladrengur við  leiðsögumannshlutverkinu, Magnús Ástvaldsson 2. bassi. Hann lét sér  heldur ekki nægja að segja frá þúfum, bændum og mórum í Dölum heldur  sagði hann líka sögur úr Hólaskógi sem væntanlega verða færðar í annála með skagfirskum  skemmtisögum 2.

Stór hluti íbúa Dalabyggðar mættu á tónleikana í Árbliki og létu sér  vel lynda söng og kynningar. Daladæturnar Erna Hjaltadóttir og  tengdadóttir hennar Linda Traustadóttir, sem er dóttir Trausta  Pálssonar fyrrum bónda að Laufskálum í Hjaltadal, tóku vel á móti  okkur og reiddu fram mikla veislu Með kaffibrauði og ástarpúngum að  söng loknum“.

Fleiri fréttir