Hestamenn halda Íslandsmót á Vindheimamelum í sumar

Íslandsmót 2012 í hestaíþróttum verður haldið á Vindheimamelum í Skagafirði dagana 19. til 22. júlí. Framkvæmdarnefnd Íslandsmóts hvetur ferðaþjónustuaðila í Skagafirði til samstarfs um að gera þessa daga að stórviðburði í Skagafirði. 

Þeir aðilar sem hafa áhuga á að nýta sér samstarf við Íslandsmót 2012 á Vindheimamelum geta haft samband við Eyþór Einarsson í síma 455-7115/862-6627 eða tölvupósti á ee@bondi.is. Þá er óskað eftir sjálfboðaliðum, bæði við undirbúning og til starfa á mótinu.

Fleiri fréttir