Hitað upp fyrir bikarleikinn á Ölveri

Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur náð samkomulagi við sportbarinn Ölver í Glæsibæ um að stuðningsmenn liðsins hiti upp þar fyrir bikarleikinn gegn Haukum sem fram fer í Laugardalshöll nk. miðvikudagskvöld kl. 20:00. Í tilkynningu frá deildinni segir að að það verði sturluð tilboð í gangi hjá þeim á Ölveri fyrir bæði í mat og drykk.

„Ölver verður opinn fyrir okkur frá 17.00 og mæta strákarnir í stuðningsmannasveitinni Gretti og rífa þetta hressilega í gang. Hvetjum við alla til að mæta og taka þá í þessari gleði og förum saman alla leið. Nú sýnum við hvernig Skagfirðingar standa saman,“ segir á Facebooksíðu deildarinnar.

Fleiri fréttir