Hjólhýsi fauk útaf í Fljótum

Það hefur blásið nokkuð hressilega undanfarna tvo daga svo ýmislegt lauslegt hefur flutt sig úr stað. Stærri hlutir vilja einnig verða vindinum að bráð en þannig fór fyrir hjólhýsi sem dregið var í gærmorgun í Fljótum og með þeim afleiðingum að bíllin sem það dró valt.

-Suðvestanáttin hér er stórhættuleg, einkum við Stafána, en líka við Grindil og ferðamennirnir þekkja þetta alls ekki, segir Arnþrúður Heimisdóttir í Langúsum.

-Á veturna kemur fyrir að Öxnadalsheiði er lokuð og umferðinni beint hér í gegn, þá liggur hringvegurinn um þessi, fyrir marga, óþekktu veðravíti. Ég tel það sé kominn verulegur tími á veðurstöð við Stafána, þar sem bílar fjúka reglubundið út af, nú þegar umferðin hér er orðin svona mikil, segir Arnþrúður og bendir á að fyrr í sumar hafi húsbíll fokið út af veginum í Fljótum.

Fleiri fréttir