Hólaskóli fær styrk úr Tækniþróunarsjóði
Háskólinn á Hólum hlaut nýlega styrk úr Tækniþróunarsjóði til rannsókna á nýjum aðferðum við val kynbótafiska, byggðum á sameindalíffræði. Á heimasíðu skólans segir að hugsanlega megi ná fram örari kynbótaframförum með því að nýta slíkar aðferðir til viðbótar þeim hefðbundnu, sem byggja á mælingum á svipgerð (vaxtarhraða og kynþroskatíma) og upplýsingum úr ættbók.
Í verkefninu er ætlunin að þróa aðferðir til þess að hraða kynbótaframförum með því að rannsaka erfðamörk fyrir breytileika í vexti og kynþroska, og að auka skilning á erfðum á holdlit og holdgæðum bleikju. Verkefnið er unnið í samstarfi við Matís og mun Eva Kuttner sjá um erfðagreiningarnar, en verkefnisstjóri er Helgi Thorarensen.
Samkvæmt heimasíðu Hólaskóla hafa starfsmenn við fiskeldis- og fiskalíffræðideild unnið markvisst að kynbótum á bleikju undanfarin tuttugu ár og hefur þessi vinna skilað góðum árangri, og gefið Íslendingum ákveðið forskot á sviði bleikjueldis. Hér má skoða sérstakan vef um það það verkefni.