Hópslys sett á svið í Skagafirði

Umfangsmikil hópslysaæfing er í gangi í Skagafirði í dag þar sem stórslys var sett á svið í Sæmundarhlíð. Fjölmennt lið björgunarfólks tekur þátt í æfingunni og hefur hún krafist mikils undirbúnings að hálfu þátttakanda.

Þegar blaðamaður Feykis  fór á vettvang blasti við ófögur sjón þar sem slysstaðurinn var afar raunverulegur. Þar átti að hafði orðið árekstur á milli skólarútu og fólksbíls og mátti heyra öskrin í slösuðum ungmennum sem æptu á hjálp. Á staðnum mátti sjá sjúkrabíla, lögreglubíla, slökkviliðsbíl, tækjabíl, björgunarsveitarfólk, áfallateymi og fleira.

Blaðamaður Feykis var vinsamlegast beðin af lögreglunni á vettvangi um að halda sig fjarri slysstað, líkt og um raunverulegt slys væri að ræða. Síðar fengust þær upplýsingar að þarna hafði átt að eiga sér stað stórslys kl. 11 í morgun þar sem rúta með 30 nemendum úr FNV innanborðs hafði lent saman við fólksbíl. Þegar tilkynning um slysið barst var hópslysaáætlun almannavarna sett í gang og stjórnstöðin var í Slökkvistöðinni á Sauðárkróki.

Nokkrir einstaklingar áttu að hafa slasast í slysinu og sumir þeirra talsvert mikið, án þess að hægt væri að fara nánar út í það, og var verið að flytja þá meiri slasaða til aðhlynningar í Reykjavík. Aðstandendur þeirra slösuðu var bent á að fara á fjöldahjálparstöð sem væri til húsa í Fjölbrautaskólanum. Lögreglan átti eftir að rannsaka tildrög slyssins.

 

Fleiri fréttir