Hótel Tindastóll hyggur á mikla stækkun

Í nýjasta Feyki sem dreift var víða á Norðurlandi átti að vera meðal efnis umfjöllun um Hótel Tindastól en þar urðu mistök við vinnslu blaðsins. Inngangurinn að greininni var réttur en greinin sjálf átti ekki við eins og lesendur hafa eflaust séð. Hér birtum við greinina eins og hún átti að birtast.

Hótel Tindastóll á merkilega sögu, ekki bara á Sauðárkróki heldur víðar í Skagafirði. Það er upphaflega norskt einingarhús, talið reist um 1820 á Hofsósi. Seinna var það tekið niður og flutt í Grafarós árið 1833. Árið 1884 var húsið enn tekið niður og þá fleytt yfir fjörðinn og byggt þar sem það stendur nú á Sauðárkróki. Það eru hjónin Guðbjörg Ragnarsdóttir og Ágúst Andrésson sem standa að rekstri Hótels Tindastóls.

-Nýting á gistiplássi hjá Hótel Tindastóli er oftast góð yfir sumartímann eða frá miðjum júní til byrjun september, segir Ágúst en eftirspurn yfir vetrarmánuðina er ekki mikil. -Núna finnum við fyrir því að hátt eldsneytisverð setur strik í reikninginn en einnig hefur viðkomum “bissness“ fólks fækkað eftir hrun. Það sem þetta þó er, dugar til að halda þessu gangandi yfir vetrarmánuðina en megin tekjurnar 70-80% koma inn 3-4 mánuði á ári, þ.e sumarið.

Nú er verið að stækka Hótel Tindastól. Hve mikil verður stækkunin?

-Hótel Tindastóll sjálft telur 10 herbergi, 7 með tvíbreiðum rúmum 1 með 2 sinnum einbreiðum rúmum og 2 herbergi (fjölskylduherbergi) með 2 X tvíbreiðum rúmum. Auk þessa erum við með 25m2 sumarhús í bakgarði hótelsins þar sem 2-3 geta gist og svo er Lindargata 1, Sólarborg að koma inn með 9 tveggja manna herbergi. Öll gistiaðstaða er með sér baðherbergi og sturtu.  Þannig að það má segja að í sumar getum við boðið upp á 20 herbergi.

Finnið þið fyrir aukinni eftirspurn eftir gistiplássi?

Já, frekar. Eigum þó eftir að vinna mikið markaðsstarf til að markaðssetja viðbótina þannig að í sumar treystum við á lausatraffík og ætlum okkur að bjóða sérstaklega góð kjör á gistingu í Sólarborg meðan við erum að koma þeirri viðbót á markað.  Gamla Hótel Tindastóll mun áfram halda sinni sérstöðu og sjarma sem elsta hótel Íslands.

Ágúst segir að þessi viðbót sem nú kemur í gangið er aðeins upphafið af því sem koma skal hjá þeim.  Uppi eru áform um enn frekari uppbyggingu gistiaðstöðu á Sauðárkrók í tengslum við rekstur Hótel Tindastóls.

-Í framtíðaráformum okkar gerum við ráð fyrir því að innan nokkurra ára verði hægt að bjóða upp á 64 herbergi yfir háannatímann í það minnsta.

Sólarborg verður þannig, að auk þessara níu herbergja, er eldhús og þvottahús þannig að það gefur okkur meiri notkunarmöguleika á þessari einingu sérstaklega yfir vetramánuðina. Þá væri hægt að bjóða upp á lengri tíma útleigu og jafnvel fyrir íþróttahópa sem koma hér í æfingabúðir eða slíkt, eins og til dæmis skíðfólk. Þeir sem gista á Sólarborg fara yfir á Tindastól í morgunmat og eins hafa þeir aðgang að heita pottinum.

Hvenær verða nýju herbergin í Sólarborg vígð?

-Í Sæluviku

Yfir aðal ferðamannatímann eru gestir Hótels Tindastóls um 95% útlendingar. Megnið af þeim gistir eina nótt og eru því hér oftast á hringferð um landið frekar en að þeir komi sérstaklega í Skagafjörð, segir Ágúst.

-Þó eru það helst ef það eru viðburðir í tengslum við hestamennsku og eins fáum við alltaf eitthvað vegna íþróttamóta, Landsbankamót, Króksmót og þ.h. Við reynum að sjálfsögðu að benda okkar gestum á mögulega afþreyingu eins og hestaferðir, Drangeyjarferðir, rafting og fleira.

Fleiri fréttir