Hrafney Lea í æfingahópi U16
Nú standa yfir æfingar hjá æfingahópi U16 landsliðs kvenna í knattspyrnu. Það er Margrét Magnúsdóttir landsliðsþjálfari U16 kvenna sem hefur valið leikmannahóp til æfinga dagana 16.-18. nóvember en æfingarnar fara fram í Miðgarði í Garðabæ. Ein efnileg Tindastólsstúlka er í æfingahópnum en það er Hrafney Lea Árnadóttir.
Það eru 30 stúlkkur í æfingahópnum og þar af eru þrjár af Norðurlandi; Hrafney Lea frá Tindastóli, Ísabella Anna Kjartansdóttir úr Völsungi á Húsavík og Emma Júlía Caraglia úr Þór á Akureyri.
Við óskum Hrafney Leu til hamingju og góðs gengis á æfingunum!
