Með velferð hestanna að leiðarljósi | Evelyn Ýr Kuhne skrifar
Stafræn lausn í þróun með stuðningi PHOENIX 4.0
Að vinna í ferðaþjónustu er krefjandi. Að vinna með hesta í ferðaþjónustu bætir við annarri ábyrgð. Þú hugsar ekki bara um markaðssetningu og sölu, faglega móttöku gesta og framkvæmd þeirrar þjónustu sem þú býður upp á. Þú þarft líka að hugsa vel um hestana þína. Þeir eru jú undirstaða þjónustunnar.
Við sem störfum í hestatengdri ferðaþjónustu heyrum, eins og aðrir, þær raddir sem leggja áherslu á velferð dýra. Sumar þeirra setja spurningarmerki við notkun hesta í ferðaþjónustu yfirhöfuð. Þessum spurningum þurfum við að mæta af alvöru og geta sýnt hvernig við hugsum um hestana okkar.
Traust er ekki sjálfgefið
„Social license to operate“ er hugtak sem heyrist æ oftar. Það má kalla samfélagslega sátt um starfsemina. Þótt við höfum öll tilskilin leyfi er ekki sjálfgefið að almenningur, eða gestirnir okkar, séu sáttir við það sem við gerum.
Við þurfum því að geta sýnt fram á að hestarnir fái góða umönnun, hæfilegt vinnuálag, næga hvíld og búnað sem hentar þeim. Það skiptir gríðarlega miklu máli að tryggja velferð þeirra, en líka að geta sýnt með skýrum hætti hvernig að því er staðið. Við viljum jú vinna faglega, njóta trausts og tryggja þannig framtíð fyrirtækjanna okkar.
Svo er það sjálfbærnin. Í hestatengdri ferðaþjónustu felst hún meðal annars í að bjóða upp á góðar upplifanir án þess að það bitni á hestunum, náttúrunni eða samfélaginu. Hvorki nú né til framtíðar.
Hér á landi er aldagömul hefð fyrir því að ferðast á hestum. Um aldir var hesturinn helsti ferðafélagi og fararskjóti landsmanna. Þessari hefð viljum við halda á lofti og gefa gestum okkar tækifæri til að kynnast henni, hvort sem það er í langri hestaferð eða stuttum reiðtúr á feti um sveitina. Þannig tengjast gestirnir bæði íslenska hestinum, landslaginu og menningararfinum.
En hvernig sem ferðinni er háttað verður velferð hestanna alltaf að vera í fyrirrúmi.
Frá dagbók að stafrænni lausn
Matvælastofnun, MAST, hefur eftirlit með velferð hestanna okkar. Hluti af okkar daglega starfi er jafnframt að halda dagbók um notkun þeirra í ferðaþjónustunni. Þar skráum við vinnutíma hrossa í seldum hestaferðum og þurfum að geta lagt þær upplýsingar fram þegar eftir þeim er óskað.
Þessi skráning hefur hingað til ekki verið í samræmdu stafrænu kerfi. Dagbókin getur verið handskrifuð eða færð í Excel-skjal, en okkur fannst tækifæri til að gera meira úr þessum upplýsingum.
Með aukinni umræðu um velferð hesta og skýrari væntingum um sýnilega dýravelferðarstefnu fórum við því að leita að stafrænni lausn. Okkur langaði að sameina daglega skráningu, yfirsýn yfir umönnun og vinnuálag hestanna og möguleikann á að miðla upplýsingum um ábyrga starfshætti. Lausnin þyrfti líka að auðvelda okkur að taka saman gögn fyrir eftirlitsaðila.
Tækifæri í PHOENIX 4.0
Þá gafst tækifæri til að sækja um styrk til samstarfsverkefnis innan PHOENIX 4.0. Verkefnið styður lítil og meðalstór ferðaþjónustufyrirtæki við þróun lausna með áherslu á meðal annars stafræna þróun, sjálfbærni og aukið rekstrarþol.
Íslenski ferðaklasinn heldur utan um PHOENIX 4.0 hér á landi. Í umsóknarferlinu voru haldnir upplýsingafundir og rafrænn kynningardagur, svokallaður Demo Day.
Það var töluverð áskorun að sækja um styrkinn. Umsóknarferlið reyndist þó líka mikilvægt tækifæri til að skilgreina verkefnið betur: Hvaða vanda vildum við leysa og hvernig ætti lausnin að nýtast í daglegu starfi?
Verkefnið fékk heitið „Digital Pathways for Responsible Horse Tourism: Combining Welfare, Sustainability, and Risk Management through Smart Data“. Það var eitt af fimm verkefnum frá Íslandi sem hlutu styrk og við erum afar ánægð með að hafa fengið þetta tækifæri til að koma hugmyndinni í framkvæmd.
Betri yfirsýn yfir hvern hest
Lausnin sem við vinnum nú að er notendavænt skráningarkerfi fyrir daglegan rekstur í hestatengdri ferðaþjónustu. Þar verður hægt að skrá notkun hestanna í ferðum, rétt eins og í dagbókinni góðu, en einnig halda utan um járningar, ormalyfjagjöf, heilsufarsupplýsingar, beit og aðra umönnun.
Einnig er gert ráð fyrir að kerfið haldi utan um bókanir og upplýsingar um farnar leiðir, vegalengdir og vinnutíma hvers hests. Þannig fáum við betri yfirsýn yfir vinnuálagið og getum tekið mið af bæði lengd og erfiðleikastigi ferðanna.
Við bókun veita gestir upplýsingar um meðal annars hæð, þyngd, aldur og reynslu. Þær nýtum við til að velja hest sem hentar hverjum knapa og skipuleggja ferðirnar með velferð hesta og öryggi gesta í huga. Upplýsingarnar styðja einnig við mat á vinnuálagi hestanna. Þær eru ekki ætlaðar til varanlegrar varðveislu sem persónuupplýsingar um gesti. Til lengri tíma verða aðeins varðveitt gögn um notkun og álag hestanna sem ekki er hægt að rekja til einstakra gesta.
Starfsfólk fær aðgang að þeim hlutum kerfisins sem það þarf á að halda. Markmiðið er að einfalda daglegt skipulag, bæta upplýsingaflæði og auðvelda okkur að dreifa verkefnum og vinnuálagi.
Skráningin á því ekki bara að uppfylla kröfur um upplýsingagjöf. Hún á að nýtast okkur til að taka upplýstar ákvarðanir um umönnun, vinnu og hvíld hvers hests. Jafnframt getur hún hjálpað okkur að sýna hvernig velferðarstefna fyrirtækisins birtist í framkvæmd.
Velferð er líka áhættustýring
Of mikið álag á hesta getur haft áhrif á heilsu þeirra og líðan. Það getur líka haft afleiðingar fyrir öryggi og upplifun gesta, orðspor fyrirtækisins og reksturinn í heild.
Áhættustýring er því mikilvægur hluti verkefnisins. Með betri yfirsýn yfir vinnuálag og hvíld getum við fyrr komið auga á ójafnvægi og brugðist við því. Kerfið kemur ekki í stað þekkingar og daglegrar umhyggju þeirra sem sinna hestunum, en það getur stutt við hvort tveggja.
Þannig fara velferð hestanna, góð upplifun gesta og traustur rekstur saman.
Samstarf sem styrkir verkefnið
Samstarf er lykilþáttur í PHOENIX 4.0 og við fengum þrjá samstarfsaðila til liðs við okkur: Icelandhorsetours á Hellulandi í Skagafirði, ferðamáladeild Háskóla Íslands á Hólum, og Matvælastofnun.
Þetta samstarf tengir saman reynslu úr daglegum rekstri, fræðilega þekkingu og sjónarmið eftirlitsaðila. Markmiðið er að þróa hagnýtt kerfi sem tekur mið af þörfum fyrirtækjanna og þeim kröfum sem gerðar eru til starfseminnar.
Við viljum jafnframt leggja grunn að lausn sem hægt verður að þróa áfram og önnur lítil og meðalstór fyrirtæki í hestatengdri ferðaþjónustu geta nýtt sér.
Verkefninu lýkur en vinnan heldur áfram
Kerfið hefur fengið nafnið Vakandi, sem er vel við hæfi því við viljum vera vakandi fyrir velferð hestanna okkar. Hönnun þess og prófanir í sumar og haust hafa gengið vel og nú erum við komin inn í síðari hluta verkefnisins. Fram undan í vetur eru rýnifundir með samstarfsaðilum og áframhaldandi þróun. Stefnt er að því að ná markmiðum verkefnisins áður en því lýkur í mars 2027.
En þótt styrkverkefninu ljúki heldur vinnan áfram. Þá tekur við áframhaldandi notkun kerfisins og vonandi frekari þróun í samstarfi við fleiri fyrirtæki í hestatengdri ferðaþjónustu.
Við vonumst til að lausnin geti auðveldað okkur öllum að halda utan um daglegt starf, sinna innra eftirliti og sýna hvernig við vinnum að velferð hestanna.
Því þegar öllu er á botninn hvolft snýst þetta ekki um skráninguna sjálfa. Þetta snýst um að hugsa vel um hestana okkar og tryggja að gestir geti áfram notið þess að fara á hestbak, upplifa íslenska náttúru og kynnast þeirri hefð sem við viljum halda lifandi.
- - - -
Höfundur greinarinnar er Evelyn Ýr, sem hefur rekið hestatengda ferðaþjónustu á Lýtingsstöðum ásamt fjölskyldu sinni frá árinu 2000.
