Hrollkaldur haustkálfur

Síma- og tölvusambandslaust er nú í Varmahlíð í Skagafirði vegna veðurs og hefur það  einhver áhrif á starfsemi staðarins. Þó segir Ágúst Ólason skólastjóri Varmahlíðarskóla það ekki hafa áhrif á skólahald sem gengur með eðlilegum hætti. Hann segir að vanti fólk nauðsynlega að ná sig vegna skólahaldsins geti það hringt í síma 7779904. Rafmagnslaust er nú á Skaga.

Haustkálfur heitir fyrsta hret haustsins og kannski óhætt að segja að máltækið sjaldan launar kálfurinn ofeldið eigi vel við eftir gott sumar. Veðurstofan býst við stormi (meira en 20 m/s) um mest allt land í dag og kvöld og er spáin fyrir Strandir og Norðurland vestra á þann veg að auk norðanvindsins verður rigning. Dregur úr vindi og úrkomu í nótt. Norðvestan 3-8 og skýjað á morgun. Hiti 2 til 7 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag:
Hægir vindar og víða bjartviðri framan af degi, en síðan vaxandi suðaustanátt, 10-15 m/s og rigning S- og V-til um kvöldið. Hiti 1 til 8 stig, svalast NA-til.

Á fimmtudag:
Norðaustlæg átt, víða 8-13 m/s og dálítil rigning, einkum A-lands. Hiti 2 til 10 stig, mildast syðst.

Á föstudag:
Hæg norðvestanátt og skúrir N- og A-lands, en annars þurrt. Fremur milt veður.

Á laugardag og sunnudag:
Breytileg átt með úrkomu víða á landinu, en áfram milt veður.

Fleiri fréttir