„Hvaða bær er þetta?“

„Hvaða bær gæti þetta verið?,“ er spurt á heimasíðu Byggðasafns Skagfirðinga en Þorsteinn Jósepsson var á ferð um Skagafjörð á sjötta áratug síðustu aldar og talið er að hann hafi tekið þessar myndir þá.

Byggðasafn Skagfirðinga óskar eftir aðstoð við að bera kennsl á bæinn á myndunum og ef einhver kannast við bæinn er viðkomandi beðinn um að hafa samband á netfangið bsk@skagafjordur.is eða í síma 453 6173.

Fleiri fréttir