Hvít jörð í morgunsárið
Jörð er hvít í morgunsárið þann 1. febrúar en spáin gerir ráð fyrir norðan og norðaustan 5-10 m/s og skýjuðu, en dálítil él fram eftir degi. Hægari í kvöld. Hæg suðaustlæg átt á morgun og víða léttskýjað. Frost 0 til 6 stig.
Gera má ráð fyrir hálku eða hálkublettum á öllum helstu leiðum.
