Íbúafundir um sameiningarviðræður í Skagafirði í dag

Íbúafundir um sameiningar viðræður sveitarfélaganna í Skagafirði verða haldnir í dag (fimmtudaginn 26. ágúst) í Miðgarði klukkan 16:30 og Héðinsminni klukkan 20:00.

Kl. 16:30 - 18:00 - Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð
Kl. 20:00 - 21:30 - Félagsheimilinu Héðinsminni, Akrahrepp.

"Akrahreppur og Sveitarfélagið Skagafjörður vinna að mati á kostum, göllum og tækifærum sameiningar sveitarfélaganna. Í september er ráðgert að sveitastjórnir taki ákvörðun um hvort þau hyggist ráðast í formlegar sameiningarviðræður sem lýkur með því að íbúar kjósi um tillöguna. Áður en sveitastjórnir taka ákvörðun um hvort hefja skuli formlegar sameiningarviðræður, verða haldnir íbúafundir í hvoru sveitarfélaginu fyrir sig þar sem helstu niðurstöður greiningar ráðgjafa verða kynntar og kallað eftir sjónarmiðum og ábendingum íbúa,"  segir á vef Svf. Skagafjarðar.

Fundunum verður einnig streymt og geta þátttakendur send ábendingar rafrænt inn á fundinn.

 

 

Fleiri fréttir