Indriði spennti bogann á Íslandsmóti

Alls voru 20 keppendur skráðir til leiks á fyrsta Íslandsmótinu í bogfimi utanhúss sem fram fór að Laugum um síðustu helgi. Í sveigbogaflokki voru alls 14 keppendur en 6 í trissubogaflokki. Indriði R. Grétarsson Skotf. Ósmann var meðal keppenda og lék um verðlaunasæti.

Á Bogfimi.net segir að mótið hafi gengið vel en helst mætti að því finna að keppnirnar urðu kannski full margar og því voru margir þátttakendur orðnir mjög þreyttir eftir helgina.

Fljótlega eftir að Íslandsmótinu lauk var komið að næsta móti. Það var hálfur FITA hringur og er þá skotið 36 örvum á 50 metra og 36 örvum á 30 metra. Notaðar voru 4 feta (122 sm) skífur. Öll stig töldu. Hér var það aðeins stigaskorið sem gilti en keppt var í tveim bogaflokkum sveigboga og trissuboga.

Í trissubogaflokki keppti Indriði einnig og endaði í öðru sæti. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast HÉR

Fleiri fréttir