Indriði Þór næsti sviðsstjóri framkvæmda- og veitusviðs?

Á fundi byggðarráðs Svf. Skagafjarðar í gær var samþykkt að leggja til við sveitarstjórn að Indriði Þór Einarsson verði ráðinn sviðsstjóri framkvæmda- og veitusviðs sveitarfélagsins. Indriði er innfæddur Króksari sonur Einars Gíslasonar og Soffíu Þorfinnsdóttur á Sauðárkróki.

Sigríður A. Jóhannsdóttir, mannauðsstjóri sveitarfélagsins segir að ráðningarferlið sé byggt á faglegu mati og það sé gegnsæi í öllu ferlinu en athygli vekur að Einar faðir Indriða er formaður stjórnar Skagafjarðarveitna sem fellur undir hið nýja skipurit sveitarfélagsins. Alls sóttu 15 um starfið en sex umsækjendanna uppfylltu menntunarkröfur og fjórir þeirra voru boðaðir í viðtöl. Einn þeirra dró umsókn sína til baka og Indriði Þór talinn þeirra hæfastur.

Tillaga um ráðningu Indriða Þórs verður lögð fyrir sveitarstjórn nk. miðvikudag.

Fleiri fréttir