Indriði Þór nýr sviðsstjóri framkvæmda- og veitusviðs

Á fundi sveitastjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar í gær, miðvikudag var samþykkt að ráða Indriða Þór Einarsson í starf sviðstjóra veitu- og framkvæmdasviðs sveitarfélagsins.

Samkvæmt fréttatilkynningu frá sveitarfélaginu útskrifaðist Indriði Þór Einarsson  sem byggingartæknifræðingur B.Sc. frá Tækniháskólanum í janúar 2004 og sem verkfræðingur M.Sc. (Civil Engineer) frá University of Washington í Seattle í Bandaríkjunum í ágúst 2009.

Indriði Þór hefur víðtæka reynslu af mannvirkjagerð s.s. við gatnagerð, hafnarmannvirki, fráveitu, sem og stjórnun og rekstri frá árinu 2005. Hefur starfað frá árinu 2009 fyrir Phil og Sön í Danmörku. Hann vinnur nú við verkefnastjórn við hraðbrautarbreikkun í Roskilde.

Indriði Þór er kvæntur Laufey Kristínu Skúladóttir og eiga þau saman tvær dætur, 4 ára og 4ra mánaða.

Áætlað er að hann taki til starfa í janúar næstkomandi.

 

Fleiri fréttir