Ingvi Rafn með þrennu í stórsigri Drangeyinga
Leikmenn Drangeyjar völtuðu yfir lið Ýmis í gærkvöldi en leikið var á Sauðárkróksvelli við ágætar aðstæður. Staðan í hálfleik var 1-0 en Eyjapeyjarnir gerðu sér lítið fyrir og bættu fimm mörkum við í síðari hálfleik og lokatölur því 6-0.
Fyrsta mark leiksins gerði Gunnar Stefán Pétursson á 11. mínútu en í síðari hálfleik spýtti Ingvi Rafn Ingvarsson rækilega í lófana og gerði næstu þrjú mörk leiksins, fyrsta markið kom á 49. mínútu, það næsta kom þremur mínútum síðar og Ingvi kvittaði svo fyrir þrennunni á 75. mínútu. Hilmar Þór Kárason gerði fimmta mark Drangeyjar á 82. mínútu og það var síðan Stefán Hafsteinsson sem batt endahnútinn með marki á 87. mínútu.
Frábær sigur og lið Drangeyjar er nú í 3. sæti í B-riðli 3. deildar með 10 stig eftir sex leiki. Næsti leikur Drangeyjar er næstkomandi laugardag en þá mætir liðið Afríku á Leiknisvelli kl. 17.