Isaac Miles farinn frá Tindastóli

Nú er það ljóst að Isaac Miles sem leikið hefur með Tindastóli í körfunni í vetur verður ekki meira með liðinu þar sem hann er á leiðinni heim. Drew Gibson sem kom til liðsins um helgina tekur sæti hans en Gibson fékk að spreyta sig gegn slöku liði Fjölnis sl. sunnudag.

Bárður segir að lítið sé hægt að segja enn um nýja manninn en hann hafi þó komið ágætlega út í fyrsta leik og vonast hann að sjálfsögðu til að Gibson nýtist liðinu vel. Markmiðið fyrir veturinn var að hafa tvo erlenda leikmenn og hefur ekkert breyst í þeim efnum.

Fleiri fréttir