Jafntefli hjá stelpunum

Meistaraflokkur Tindastóls kvenna fékk HK/Víking í heimsókn í gær og léku sinn síðasta leik í 1. deildinni þetta tímabil. Leikurinn einkenndist af baráttu heimastúlkna í vörninni í fyrri hálfleik sem sjaldan komust yfir miðju á móti sterkum andstæðingum sem og sterkum mótvindi.

Gestirnir voru nánast í sókn allan fyrri hálfleik og voru klaufar að skora ekki úr þeim dauðafærum sem þeir fengu. Skot í stöng og rétt framhjá og yfir markið við markteig. Vörn heimastúlkna lék stórt hlutverk í leiknum sem og Kristín Halla sem stóð á milli stanganna og varði vel en hún hefur átt gott tímabil í sumar.

Í seinni hálfleik léku heimastúlkur undan vindinum og náðu að rétta úr kútnum með nokkrum góðum sóknum og voru óheppnar að skora ekki úr þeim færum sem þær fengu. Hæglega hefðu þær getað stolið sigrinum undir lokin en þá fengu þær tvö góð færi, skot af löngu færi sem markmaður gestanna náði að verja naumlega svo eftir aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig en litlu mátti muna að sóknarleikmenn Tindastóls náðu að pota boltanum inn.

Pétur Björnsson þjálfari, eini maður leiksins sem fékk áminningu eftir að hann setti út á dómarann, var ánægður með stigið og má vel við una eftir ágætt gengi liðsins í sumar. Vann liðið 4 leiki og gerði 1 jafntefli og enduðu í 7. sæti með 13 stig.

Fleiri fréttir