Jakob Svavar og Alur Sigursælir
Þeir Jakob Svavar Sigurðsson og Alur frá Lundum II voru sigursælir í dag því auk þess að sigra í slaktaumatöltinu gerðu þeir sér lítið fyrir og sigruðu einnig í fimmgangi með einkunnina 7,76. Haukur Baldvinsson og Falur frá Þingeyrum urðu í öðru sæti með 7,55.
1 | Jakob Svavar Sigurðsson / Alur frá Lundum II | 7,76 | |||
2 | Haukur Baldvinsson / Falur frá Þingeyrum | 7,55 | |||
3 | Viðar Ingólfsson / Már frá Feti | 7,45 | |||
4 | Þórarinn Eymundsson / Þeyr frá Prestsbæ | 7,26 | |||
5 | Guðmundur Björgvinsson / Snævar Þór frá Eystra-Fróðholti | 7,05 | |||
6 | Jón Finnur Hansson / Narri frá Vestri-Leirárgörðum | 6,48 |