Jan Bezica nýr þjálfari meistaraflokks kvenna í körfubolta og yfirþjálfari yngri flokka
Nú á dögunum undirrituðu þeir Jan Bezica og Sævar Már Þorbergsson, formaður Unglingaráðs körfuknattleiksdeildar Tindastóls undir samning þar sem að Jan tekur við af Baldri Þór sem yfirþjálfari yngri flokka körfuknattleiksdeildar Tindastóls næsta árið. Einnig skrifaði Jan undir nýjan samning við Körfuknattleiksdeildar Tindastóls en hann tekur við þjálfun meistaraflokks kvenna næsta tímabil.
Jan hefur verið á Króknum síðan 2019 en hann var ráðinn sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla sumarið 2019 og hefur starfað sem slíkur síðan þá, en lætur nú af störfum og tekur við nýjum hlutverkum innan körfuknattleiksdeildarinnar.
/SMH