Jóhann Björn varð 8. í Vaxjö

Jóhann Björn Sigurbjörnsson spretthlaupari úr Tindastól/UMSS varð áttundi í 100 metra spretthlaupi er hann keppti með sameiginlegu liði Íslendinga og Dana á Norðurlandamóti 19 ára og yngri í frjálsíþróttum sem fram fór í Vaxjö í Svíþjóð um helgina. Jóhann hljóp á tímanum 11,17 sekúndur en félagi hans, Frederik Thomsen frá Danmörku, kom fyrstur í mark ásamt  Jan Wocalewski frá Svíþjóð en þeir urðu jafnir á tímanum 10,60 sekúndur.

Jóhann Björn tók einnig spretti í boðhlaupi en sú sveit var skipuð Íslendingum. Lenti hún í 4. sæti í 4x100m á 42,70 sekúndum en það voru Finnar sem sigruðu á 40,60 sek. Í 4x400m endaði boðhlaupssveitin í 5. og neðsta sæti með tímann 3,19,06 sekúndur en norska sveitin varð hlutskörpust og sigraði á tímanum 3,14,36 sekúndur.

Með Jóhann Birni hlupu þeir Ingi Rúnar Kristinsson, Kolbeinn Gunnarsson og Snorri Stefánsson í 4x400m en Sindri Hrafn Guðmundsson og Snorri höfðu sætaskipti í 4x400m.

Fleiri fréttir