Jólagetraun Skagfirðingabúðar
Nýr getraunaleikur hefst í Skagfirðingabúð í dag þar sem þátttakendum gefst tækifæri á að vinna öll sex bindin af Byggðasögu Skagafjarðar að andvirði 55 þúsund króna. Um er að ræða samstarfsverkefni Skagfirðingabúðar og Byggðasögu Skagafjarðar.
Til að vinna þennan veglega vinning þarftu að svara spurningunni:
Hver var síðasti kaþólski biskupinn á Hólum?
Getraunaseðlar liggja í bókadeild Skagfirðingabúðar og hægt að setja þá í þar til gerðan kassa. Fyrir þá sem vilja er hægt að fletta í Byggðasögunni á staðnum og finna svarið við getrauninni. Dregið verður um vinningshafa laugardaginn 22. desember.