Jólamót UMSS 20. desember

Jólamót UMSS í frjálsíþróttum verður haldið í Íþróttahúsinu í Varmahlíð fimmtudaginn 20. desember og hefst það kl. 16. Keppt verður í aldursflokkum karla og kvenna frá 10 ára aldri. Í kúluvarpi verður skipt í flokka eftir þyngd kúlu.

Keppnisgreinar:

  • Kúluvarp og hástökk með atr.,
  • langstökk, þrístökk og hástökk án atr..

UMSS óskar eftir því að sem flestir geti aðstoðað við mótið.

Fleiri fréttir