Jólastemning í Sparisjóðnum
Nú fer hver að verða síðastur að taka þátt í jólagetraun Sparisjóðsins en samkvæmt fréttatilkynningu frá Sparisjóðnum eru glæsilegir vinningar í boði. Dregið verður úr svörum á morgun, föstudaginn 21. desember
Spurt er: Hvaða íslenski jólasveinn kemur til byggða þann 21. desember?
Opið verður til kl. 18:00 í dag, fimmtudaginn 20. desember og eru allir hvattir til að koma og gæða sér á bakkelsi og heitu súkkulaði frá Sauðárkróksbakaríi.