Jólatrésskemmtun Kvenfélags Skarðshrepps 30. desember kl. 16

Þau leiðu mistök urðu í auglýsingu um jólaböll og áramótabrennur í Skagafirði í nýjasta tölublaði Feykis að þar segir að jólatrésskemmtun Kvenfélags Skarðshrepps sé haldið í Ljósheimum þann 28. desember kl. 15 en réttur tími er 30. desember kl. 16.

Einnig kemur fram röng tímasetning í dagskránni Sjónhorninu, þar kemur fram rétt dagsetning en vitlaus tími. Auglýsing um jólatrésskemmtunina er þó rétt.

Jólatrésskemmtunin er semsagt í Ljósheimum sunnudaginn 30. desember kl. 16.

Beðist er velvirðingar á þessum rangfærslum.

Fleiri fréttir