Jólavaka Grunnskólans á Hofsósi

Jólavaka Grunnskólans á Hofsósi verður haldin í félagsheimilinu Höfðaborg fimmtudaginn 13. desember kl. 20:30. Aðalgestur kvöldsins er Svavar Knútur sem flytur nokkur falleg jólalög.

Samkvæmt auglýsingu í Sjónhorninu verður dagskráin fjölbreytt, má þar nefna upplestur, söng og hljóðfæraleik nemenda. Hátíðarræðu flytur Björn Björnsson fyrrverandi skólastjóri.

Aðgangseyrir er 1500 kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir börn á grunnskólaaldri. Tekið er við greiðslukortum.

 

Fleiri fréttir