Jólin alls staðar á Króknum 4. des

Regína Ósk, Guðrún Árný, Guðrún Gunnars og hinn færeyski Jógvan verða í farabroddi ásamt fjórum hljóðfæraleikurum og svo barnakór frá hverjum stað í tónleikaröð sem senn fara af stað og nefnast "Jólin alls staðar". -Þetta eru einstaklega ljúfir og fallegir tónleikar þar sem mestmegnis eru flutt gömlu góðu jólalögin sem við ólumst öll upp við, segir Regína Ósk.

Að sögn Regínu er þetta líklega ein viðamesta tónleikaferð ársins þar sem 19 kirkjur verða heimsóttar í öllum landshlutum en saman ferðast hópurinn á sannkallaðri jólarútu og vonast þau til að koma með jólin - alls staðar.

Lagt verður af stað miðvikudaginn 28. nóvember og hefst tónleikaröðin í Ólafsvíkurkirkju en á Sauðárkróki verður hópurinn þann 4. desember kl 21:00 í Sauðarkrókskirkju og segir Regína Ósk að þau vonist til að sjá sem flesta.

Miðasala er í fullum gangi á midi.is en uppselt er að verða víða. Þar sem verða lausir miðar verður svo hægt að kaupa miða við innganginn allt að 2 klukkustundum fyrir tónleika.

Fleiri fréttir