Jón Adolf Guðjónsson sæmdur gullmerki KS
Stjórn Kaupfélags Skagfirðinga svf. ákvað að sæma Jón Adolf Guðjónsson fyrrverandi bankastjóra Búnaðarbanka Íslands „gullmerki“ Kaupfélags Skagfirðinga svf. fyrir öflugan stuðning við uppbyggingu atvinnulífs í Skagafirði.
Jón Adolf Guðjónsson starfaði sem aðalbankastjóri við Búnaðarbanka Íslands um árabil og var á þeim tím-um svæðisstjóri gagnvart Skagafirði. Aðkoma hans að málum skipti miklu fyrir framþróun atvinnulífs í Skagafirði undir lok síðustu aldar og við upphaf þeirra tuttugustu og fyrstu. Fyrir það vilja Skagfirðingar þakka.