Kaldavatnslaust í Túnahverfi í dag
Vegna viðgerða mun verða kaldavatnslaust í Túnahverfi neðan Iðutúns og Jöklatúns á Sauðárkróki, eitthvað fram eftir degi. Samkvæmt tilkynningu frá Skagafjarðaveitum verður reynt að hafa lokunartímann sem stystan og eru notendur beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kanna að valda.