Kanna hagkvæmni heilsársvegar um Kjöl

Nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram þingsályktunartillögu um heilsársveg um Kjöl en í henni er lagt til að ríkisstjórnin að kanni þjóðhagslega hagkvæmni þess að leggja heilsársveg um Kjöl. Í tillögunni er lagt til að hinn nýi vegur yrði lagður frá þjóðvegi 1 við Silfrastaði í Skagafirði yfir að Gullfossi.

„Slíkur vegur lægi upp Goðdalafjall að norðan og svo áfram sem leið liggur milli jökla, lægi síðan austan við Bláfell og mundi enda við umferðarmiðstöðina við Gullfoss. Það mun þýða 47 km styttingu milli Reykjavíkur og Akureyrar (farið um Hellisheiði). Vegalengd fer úr 388 km niður í 341 km. Stytting milli Selfoss og Akureyrar verður 141 km, úr 430 km niður í 289 km. Fyrstu athuganir benda til þess að vetraraðstæður á Kili verði ekki að ráði verri en á fjallvegum á Norður- og Austurlandi,“ segir í tillögunni.

Í tilllögunni kemur fram að vegurinn yrði 145 kílómetra langur, 8,5 metra breiður, upphækkaður um 2–3 metra yfir nánasta umhverfi og færi mest í 720 metra hæð yfir sjávarmáli.

Miðað er við að þessi framkvæmd sé öll eða að hluta unnin sem einkaframkvæmd og að kostnaður við hana greiðist með veggjöldum eftir því sem eðlilegt er. Jafnframt verði gerð forkönnun á umhverfisáhrifum og könnuð samfélagsleg áhrif framkvæmdarinnar, m.a. á atvinnustarfsemi og byggðir landsins.

„Ætlunin var að leggja veginn í einkaframkvæmd og fjármagna með veggjöldum. Kostnaðurinn var áætlaður vera í kringum 4,2 milljarðar kr. og gert ráð fyrir því að veggjaldið næmi 2.000 kr. fyrir staka ferð á fólksbíl en 8.000 kr. fyrir þungaflutninga, afslættir áttu að vera í boði fyrir þá sem nýttu veginn oft samkvæmt svipuðu fyrirkomulagi og er í Hvalfjarðargöngum,“ segir í tilllögunni.

Ríkisstjórnin skili Alþingi skýrslu um málið fyrir 1. apríl 2013.

Fleiri fréttir