KB LÍG gegn Drangey
KB og Drangey mættust í 3. deildinni í gærkvöldi á Leiknisvelli í Reykjavík en leikmenn Drangeyjar heyja nú baráttu um sæti í úrslitakeppni 3. deildar. Sigur var því nauðsynlegur og honum lönduðu strákarnir því KB laut í gras.
Bjarki Már Árnason gerði fyrsta mark leiksins og Ingvi Rafn Ingvarsson bætti öðru við fyrir hlé. Óskar Smári Haraldsson gerði þriðja mark Drangeyjar í síðari hálfleik og því góður sigur í höfn.
Drangey er nú í þriðja sæti B-riðils með 15 stig að loknum 10 leikjum. Magni og ÍH eru í efstu sætunum, bæði með 19 stig. Drangey og ÍH mætast á Sauðárkróksvelli sunnudaginn 29. júlí og nokkuð ljóst að ef strákarnir ætla að halda í vonina um sæti í úrslitakeppninni kemur ekkert annað en sigur til greina gegn ÍH.