Kínverjar vilja minkakjöt

Sagt var frá því á Mbl.is í gær að Kjötafurðastöð Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki hafi fengið fyrirspurnir frá áhugasömum kaupendum í Kína sem vilja kaupa minkakjöt frá íslenskum loðdýrabændum.

Ágúst Andrésson, forstöðumaður afurðastöðvarinnar, segist í samtali við Morgunblaðið hafa fengið nokkrar fyrirspurnir um minkakjötið, sem er eftirsóttur matur í Kína og á hann von á áhugasömum kaupendum í Skagafjörðinn frá Kína núna í maí.

Fleiri fréttir