Kirkjukór Sauðárkróks 70 ára

Í ár fagnar Kirkjukór Sauðárkróks 70 ára afmæli sínu. Í tilefni af því buðu kórfélagar í afmæliskaffi síðastliðinn sunnudag í félagsheimilinu Ljósheimum að lokinni messu í Sauðárkrókskirkju.

Fyrrverandi söngfélagar og aðrir velunnarar kórsins skunduðu í Ljósheima og samglöddust kórfélögum. Einn af stofnendum kórsins, Anna Pála Guðmundsdóttir, mætti á afmælishátíðina og voru henni færð blóm og þökkuð störf í þágu kórsins. Þá söng kórinn nokkur lauflétt lög.

Í bókinni Sauðárkrókskirkja og formæður hennar segir: „Kirkjukór Sauðárkróks var stofnaður 20. ágúst, mest að tilstuðlan Sigurðar Birkis söngmálastjóra og Eyþórs Stefánssonar. Stofnendur voru tuttugu, en þrjátíu talsins, ef allir eru taldir, sem urðu virkir félagar á árinu 1942.“ Samkvæmt félagslögum skildi tilgangur kórsins vera að starfa að „...kirkjulegri söngmennt og tónlist, með samsöngum og á annan hátt, er heppilegastur telst á hverjum tíma.“

Núverandi formaður Kirkjukórs Sauðárkróks er Sólveig Þorvaldsdóttir en organisti og stjórnandi kórsins er Rögnvaldur Valbergsson en hann hefur gegnt starfinu í rúman aldarfjórðung.

 

Kirkjukór Sauðárkróks 70 ára. Rögnvaldur spilar undir.

Kirkjukór Sauðárkróks 70 ára.

 

Fleiri fréttir