Kjörskrá birt í vígslubiskupskjöri í Hólaumdæmi

Kjörstjórn við vígslubiskupskosningu hefur samið kjörskrá vegna kjörs vígslubiskups í Hólaumdæmi en á kjörskrá eru 181. Sá sem hyggst gefa kost á sér sem vígslubiskup í Hólaumdæmi skal tilkynna það kjörstjórn. Núverandi vígslubiskup er Jón A. Baldvinsson.

Á Kirkjan.is segir að tilkynning um framboð skuli afhenda kjörstjórn eigi síðar en fjórum vikum eftir að kjörskrá er lögð fram en hún miðast við 1. apríl 2012. Tilkynning þarf að berast hafa með sannanlegum hætti fyrir kl. 16.00 á síðasta degi skilafrests, þ.e. 30. apríl 2012 eða hafa verið póstlögð og póststimpluð í síðasta lagi þann dag.

Kjörskráin liggur frammi til sýnis á Biskupsstofu, Laugavegi 31, Reykjavík, og hjá próföstum til þriðjudagsins 10. apríl 2012. Hún er einnig birt hér á vef Þjóðkirkjunnar.

Kærur til breytinga á kjörskránni þurfa að hafa borist kjörstjórn á Biskupsstofu fyrir kl. 16.00, þriðjudaginn 10. apríl nk., eða hafa verið póstlagðar og póststimplaðar í síðasta lagi þann dag. Kjörstjórn úrskurðar kærur og gengur endanlega frá kjörskrá innan viku frá lokum kærufrests. Niðurstöður kjörstjórnar munu liggja frammi á Biskupsstofu og geta kærendur kynnt sér þær þar.

 

Fleiri fréttir