Knattspyrnuveisla á Króknum um helgina
Þá er komið að því að spilaður verður heimaleikur í fótboltanum á Króknum en um helgina fara fram tveir leikir. Á laugardag leikur 1. deildarliðið Tindastóll gegn Víkingi Ólafsvík og 3. deildarliðið Drangey leikur gegn KFG úr Garðabæ.
Tindastóll hefur ekki alveg náð að ballansera leiki sína á undirbúningstímabilinu en þeir sýndu góða takta gegn Haukum fyrir nokkru þrátt fyrir tap og svo áttu þeir hörmungar leik gegn Dalvík/Reyni í bikarnum á miðvikudagskvöld þar sem þeir töpuðu 0 – 2. Í umsögn um leikinn á Tindastóll.is segir að Tindastóll hafi verið næstbesta liðið á vellinum allar 90. mínúturnar og átti aldrei skilið að fá neitt útúr leiknum.
En nú er komið að því að liðið sýni hvað í því býr og eru allir hvattir til að mæta á völlinn báða dagana.
Nú þarf að greiða inngangseyri á alla meistaraflokksleiki og eru þeir sem ekki eru vildarvinir beðnir um að greiða með peningum (ekki greiðslukorti) þar sem það flýtir verulega fyrir afgreiðslu.
Leikurinn laugardag hefst klukkan 16:00 en kl. 14:00 á sunnudag