Kom í heiminn á KS planinu í Varmahlíð

Að kvöldi 27. desember lögðu þau Tinna Ýr Tryggvadóttir og Jón Oddur H. Hjálmtýsson á Sauðárkróki af stað til Akureyrar til að koma þriðja barni þeirra í heiminn. Skömmu eftir að þau lögðu af stað varð þeim ljóst að barnið gat ekki beðið því skömmu eftir að þau keyrðu framhjá Glaumbæ byrjaði Tinna Ýr að rembast.

Skömmu síðar tók Jón Oddur á móti syni sínum á bílaplaninu hjá KS í Varmahlíð í Grand Cherokee jeppa þeirra, með aðstoð frá Neyðarlínunni sem leiðbeindi honum dyggilega í gegnum síma. „Þetta gekk í raun ótrúlega vel miðað við aðstæður,“ segir Jón Oddur í samtali við Feyki. Þó svo reynslan hafa verið skrítin þá segir hann hana engu að síður hafa verið frábæra. „Það var voða mikill léttir þegar hann var fæddur og að allt gekk vel,“ bætir Tinna Ýr við, sem þó beið óþreyjufull eftir sjúkrabílnum.

Tinna Ýr og Jón Oddur verða í viðtali í næsta tölublaði Feykis, sem kemur út nk. fimmtudag, þar sem þau deila ævintýralegu fæðingarsögu sinni með lesendum blaðsins. 

Fleiri fréttir