Komdu í kaffi
Frá og með 12. apríl mun Sjálfsbjörg í Skagafirði vera með opið hús í Húsi Frítímans frá kl. 10-12 á fimmtudagsmorgnum. Félagsskapurinn er öllum opinn og er fólk hvatt til að kíkja í kaffi. Óli Óla tekur á móti fólki og verður til skrafs og ráðagerða.
Er það von Sjálfsbjargarfélaga að fólk komi saman og hittist yfir kaffibolla, beri saman bækur og fái jafnvel aðstoð til úrlausna ýmsum málum en Óli ætlar að aðstoða eins og hann getur.
Nú er bara að drífa sig í kaffi í Hús Frítímans nk. fimmtudag og alla fimmtudaga hér í frá
út maí en þá fer félagsskapurinn í frí, þangað til í september.
/Félag Sjálfsbjargar í Skagafirði