Kórahátíð í Húnaveri

Sameiginleg árshátíð Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps, Kirkjukórs Blönduóskirkju og Rökkurkórsins í Skagafirði verður haldin í Húnaveri þann 12. janúar nk. og hefst samkoman kl. 20:30. Boðið verður uppá söng, gamanmál og veislumáltíð að hætti Húnavers, síðan munu Geirmundur og Jóhann leika fyrir dansi og gert er ráð fyrir að dansinn hefjist um kl. 23.00.

Vinir og velunnarar kóranna eru hvattir til að fjölmenna og fagna nýju ári með kórfélögum, segir í fréttatilkynningu. Miðaverð er  6.000 kr. en sé einungis mætt á ballið kostar miðinn 2.000 kr. Þátttökutilkynningar skulu hafa borist til undirritaðra fyrir 8. janúar nk.

Péturs Péturssonar, símar 452-4349/864-4349 netfang: holabaer@emax.is , Þorleifs Ingvarssonar, símar 452-7150/893-4006 netfang:  solheim@emax.is , Valborgar Hjálmarsdóttur símar 453-8108/869-8108 netfang: valborgjh@simnet.is

„Við hlökkum til að sjá ykkur,“ segir loks í tilkynningu frá kórunum.

Fleiri fréttir