Körfubolti um helgina

Strákarnir í meistaraflokki Tindastóls munu leggja land undir fót um helgina og spila tvo æfingaleiki sunnan heiða. Stelpurnar í stúlknaflokki fara hins vegar í hina áttina og spila æfingaleik við meistaraflokk Þórs.

Fyrri leikur hinna nýkrýndu Greifamótsmeistara verður í kvöld gegn ÍR í Hertz-hellinum í Breiðholti og er áætlað að hann hefjist um kl. 18.30, en á laugardag fara þeir á Suðurnesin og spila við Njarðvíkinga kl. 14.30. á Tindastóll.is segir að "Stóri maðurinn" George Valentine sé væntanlegur til landsins á laugardagsmorguninn, en Isacc Miles bakvörður er væntanlegur strax eftir helgina.

Stelpurnar í stúlknaflokki spila á Akureyri gegn meistaraflokki Þórs í kvöld kl. 19:00 í Síðuskóla. Liðið er ungt að árum, elsti leikmaðurinn fæddur 96, en í liðinu eru líka stelpur fæddar 97 og 98. „Það verður gaman að sjá þær spreyta sig gegn meistaraflokki Þórs,“segir á heimasíðu Tindastóls.

Körfuboltaskólinn verður á sínum stað á sunnudagsmorguninn undir stjórn Bárðar Eyþórssonar. Nánar um starfsáætlun skólans er hægt að finna HÉR.

Fleiri fréttir