Kórstarfi slitið eftir 30 ára hlé

Karlakór Sauðárkróks kom saman í Safnaðarheimili Sauðárkrókskirkju sl. mánudagskvöld til þess að slíta formlega starfi kórsins, sem hefur legið niðri í um 30 ár. Gleði sem einkenndi þessa endurfundi, að sögn Ingimars Jóhannssonar, þó svo ekki nema þriðjungur af mannskapnum voru þar samankomnir. 

Á fundinum þurfti að ganga frá ýmsum málefnum kórsins sem hafði ekki verið gengið frá á sínum tíma, þar á meðal átti kórinn í fórum sínum píanó og kom einnig í ljós dágóð summa inn á bankabók.

„Það kom í ljós að kórinn átti aur inni á reikning sem var búin að safna vöxtum sl. 30 ár eða svo. Þetta hafa verið tæpar 100 þúsund krónur á sínum tíma en nú voru þær orðnar rúmar 400 þúsund,“ segir Ingimar en ákveðið var á fundinum að gefa peningana til Utanfarasjóð sjúkra en hann styrkir fólk sem þarf að leita lækninga erlendis.

„Píanóið hefur verið í varðveislu Félags eldriborgara í Skagafirði í Húsi frítímans og því var ákveðið var að gefa félaginu píanóið,“ segir Ingimar.

Mikil gleði og ánægja ríkti á fundinum og þótti mönnum gaman að koma saman og rifja upp gamlar stundir,“ segir Ingimar í lokin.

Nánari umfjöllun um málið verður í næsta tölublaði Feykis.

 

Fleiri fréttir