KR-ingar höfðu betur í fyrsta leik
Úrslitakeppnin í Iceland Express deild karla hófst í gærkvöldi og héldu Tindastólsmenn suður yfir heiði, alla leið í Vesturbæinn þar sem kempur KR biðu eftir þeim ásamt fjölmennum og fríðum flokki stuðningsmanna Tindastóls. KR-ingar höfðu frumkvæðið lengstum í leiknum og lönduðu nokkuð öruggum sigri þó Stólarnir hafi gert góða atlögu að þeim undir lok þriðja leikhluta. Lokatölur 84-68.
KR gerði fyrstu þrjár körfur leiksins en Stólarnir náðu að jafna 10-10 og komust síðan yfir 14-15 með 3ja stiga körfu frá Allen. Heimamenn náðu þó frumkvæðinu aftur og til að gera langa sögu stutta þá héldu þeir forystunni til leiksloka. Staðan var 23-19 að loknum fyrsta leikhluta en Svabbi minnkaði muninn í eitt stig, 25-24, snemma í öðrum leikhluta. Leikurinn var síðan í járnum en KR yfirleitt með þetta 5-8 stiga forskot þangað til tvær mínútur voru til hálfleiks en þá kom slæmur kafli hjá Tindastólsmönnum. Á meðan KR bætti við 7 stigum gerðu Stólarnir ekkert og staðan breyttist úr 39-32 í 46-32.
Okkar menn voru þó ekkert á því að leggja upp laupana og Þröstur Leó og Helgi Rafn gerðu fyrstu körfurnar í síðari hálfleik. KR-ingar voru ekki á þeim buxunum að gefa eftir og munurinn yfirleitt 8-15 stig. Þegar tvær mínútur lifðu af þriðja leikhluta kom Svabbi inná og gerði 5 stig í röð og skyndilega aðeins 3ja stiga munur, staðan 60-57.
Báðum liðum gekk illa að nýta góð færi en í fjórða leikhluta voru heimamenn í KR skynsamari og voru duglegir við að koma boltanum inn í teig á Ferguson sem nýtti færi sín vel og smátt og smátt jókst munurinn á ný. Þegar 6 mínútur voru eftir af leiknum minnkaði Þröstur Leó muninn í 69-63 en tvær 3ja stiga körfur frá Sencanski og Ferguson gerðu vonir Tindastólsmanna um sigur litlar, sérstaklega þar sem Stólarnir skoruðu ekki í 4 mínútur um miðjan leikhlutann. Það fór því svo á endanum að KR landaði öruggum sigri, 84-68.
Leikmenn Tindastóls náðu sér ekki á strik í sókninni í gærkvöldi en varnarleikur liðsins var á köflum ágætur. Enginn leikmaður stóð uppúr en stigahæstur Stólanna var Curtis Allen með 16 stig og 7 fráköst. Miller var með ansi dapra skotnýtingu, setti aðeins niður 3 af 14 skotum sínum en hann var heitari á vítalínunni þar sem hann setti niður öll 7 skot sín. Helgi Rafn gerði 9 stig og reif niður 8 fráköst og þá átti Svabbi góða innkomu og setti 11 stig.
Nú er annar leikur liðanna næstkomandi sunnudag í Síkinu og eru stuðningsmenn Tindastóls hvattir til að fjölmenna og hvetja Tindastól til sigurs. KR-ingar hafa heimsótt Síkið tvisvar áður í vetur og ekki hafa þeir riðið feitum hestum frá þeim viðureignum. Það er algjör óþarfi að fara að breyta því eitthvað. Áfram Tindastóll!
Stig Tindastóls: Allen 16, Miller 13, Þröstur Leó 12, Svabbi 11, Helgi Rafn 9, Tratnik 5 og Hreinsi 2.