KR-sigur í Síkinu

Tindastóll fékk í kvöld KR í heimsókn í Síkið en um annan leik liðanna var að ræða í úrslitakeppni Iceland Express deildarinnar. KR vann fyrri leik liðanna í Vesturbænum nokkuð örugglega og í kvöld varð engin breyting, KR leiddi nánast frá upphafi til enda og komust heimamenn aldrei yfir í leiknum þrátt fyrir hetjulega baráttu. KR sigraði 89-81 og eru komnir í undanúrslit.

Ágæt mæting var í Síkið en þó hafa örugglega einhverjir staðið tvístígandi í fermingarveislu og beðið frétta af leiknum, en fermt var á Króknum í dag og það geta víst ekki allir skipt á fermingarveislu og körfuboltaleik þótt mikilvægur sé.

KR-ingar byrjuðu betur en hvorugt liðið var að spila glimrandi sóknarbolta en það var hinsvegar hart tekist á frá byrjun og augljóst að KR-ingar ætluðu ekki að hleypa Króksurum aftur í Vesturbæinn til að spila þriðja leikinn í einvíginu. Tindastólsmenn börðust og jöfnuðu leikinn 11-11 en gestirnir höfðu undirtökin og laumuðust fram úr. Fimm stigum munaði eftir fyrsta leikhluta og það var allt í járnum fram að hálfleik. KR-ingar yfirleitt þremur til sex stigum yfir. Svavar  Birgisson minnkaði muninn í eitt stig, 32-33, skömmmu fyrir hlé en Martin Hermannsson sá til þess að KR hafði þriggja stiga forskot í hálfleik, 34-37.

KR byrjaði þriðja leikhluta vel. Fljótlega voru þeir komnir með 14 stiga forskot, 38-52, en þá fór Dejan Sencanski á kostum. KR-ingar náðu að loka vel á Maurice Miller og hann sá vart til sólar í leiknum og ekki fékk hann tóm til að bæta leik sinn á lokakaflanum, eins og svo oft í vetur, því um miðjan þriðja leikhluta fékk hann högg í andlitið svo fossblæddi og varð kappinn að yfirgefa völlinn og kom ekki meira við sögu. Þetta hefði kannski átt að draga vígtennurnar úr heimamönnum en þeir bitu á jaxlinn og náðu góðum kafla þar sem slegist var um hvern bolta. Hægt og bítandi minnkuðu þeir muninn og í upphafi fjórða leikhluta gerði Curtis Allen góða körfu og munurinn aðeins fimm stig, 55-60. Hreggviður Magnússon og Sancanski slökktu þennan neista í hvelli með 3ja stiga körfu og troðslu og allt til leiksloka héldu gestirnir um 10 stiga forystu og unnu öruggan og sanngjarnan sigur, 81-89.

KR-ingar voru vel að sigrinum komnir, þeir voru sterkari aðilinn í báðum viðureignum liðanna. Til að sigra KR hefði allt þurft að ganga upp hjá Tindastólsmönnum en í gærkvöldi gerðu Stólarnir og mikið af mistökum í sókninni og voru á köflum óskynsamir. KR-ingar börðust eins og ljón, voru á köflum ansi grófir, og nýttu vel breiddina í sínu liði. Bestur KR-inga var Sencanski sem gerði 27 stig í leiknum í öllum regnbogans litum. Hjá Stólunum var Allen drjúgur, gerði 25 stig, en reyndi ansi mikið upp á eigin spýtur á lokakaflanum. Strákunum okkar gekk ekki vel upp í skotum utan 3ja stiga línu, settu 5 skot niður í 22 tilraunum. Þá nýttu KR-ingar sér vel hæðarmuninn en þeir hirtu 42 fráköst á meðan Stólarnir tóku 32.

Stólarnir eru því komnir í sumarfrí en sannarlega má segja að ræst hafi úr tímabilinu eftir erfiða byrjun. Tindastóll náði góðu skriði um mitt tímabil eftir að Bárður Eyþórsson tók við liðinu, strákarnir fóru sællar minningar - eða þannig - í bikarúrslitaleik gegn Keflvíkingum en gengið eftir þann leik hefur verið upp og ofan. Liðið tryggði sér hinsvegar sjöunda sætið í deildinni og þátttöku í úrslitakeppninni þar sem liðið mætti KR sem hafnaði í öðru sæti deildarinnar. Lið KR reyndist of stór biti fyrir Stólana og þrátt fyrir að Stólarnir hafi tvisvar sigrað KR hér heima í vetur þá hafðist það ekki í þriðja skiptið.

Stig Tindastóls:  Allen 25, Helgi Rafn 15, Rikki 10, Igor Tratnik 8 / 6 fráköst, Þröstur Leó 8, Svavar 7, Maurice Miller 6 og Hreinn 2.

Stig KR: Sencanski 27, Brown 18 / 9 fráköst, Finnur 14, Fergusson 10, Martin 8, Hreggviður 7, Skarphéðinn 3 og Jón Orri 2.

Fleiri fréttir