Kristinn Knörr sigursæll með Fjarmerkjaskannann

Kristinn Knörr Jóhannesson nemandi í Grunnskólanum Austan vatna var í 1. sæti í landbúnaðarflokki í Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda fyrir uppfinningu sína Fjarmerkjaskanni. Úrslit voru gerð kunn með viðhöfn í Háskólanum í Reykjavík í gær.  

Afhending verðlauna fór fram í lokahófi Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda en keppnin var nú haldin í 21. sinn. Samkvæmt fréttatilkynningu voru samtals 40 þátttakendur víðsvegar af landinu til að taka þátt í vinnusmiðju NKG. Alls 14 þátttakendur fengu verðlaun og þar af voru 12 hugmyndir og voru verðlaun veitt í fjórum flokkum; Landbúnaður, Tölvur og tölvuleikir, Uppfinning og Útlits- og formhönnun. Í ár bárust 1.100 hugmyndir frá 32 grunnskólum.

Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson verndari keppninnar, afhenti verðlaun og flutti hátíðarræðu. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra flutti hvatningarræðu, afhenti viðurkenningarskjöl til þátttakenda og farandbikar til grunnskóla. Þá kynntu þátttakendur hugmyndir sínar fyrir gestum, en JCI stóð fyrir framsögu þjálfun í vinnusmiðju keppninnar.

Keppnin er haldin á vegum Mennta- og menningarmálaráðuneytisins. NKG verkefnalausnir sjá um framkvæmd og rekstur NKG. Aðalbakhjarl er Marel. Bakhjarlar eru eftirfarandi : Háskólinn í Reykjavík, Háskóli Íslands, Landsbankinn og Samtök Iðnaðarins.

Tilgangur keppninnar er að efla nýsköpunarstarf í grunnskólum og gera börnum grein fyrir sköpunargáfu sinni og hvernig þroska megi hana í gegnum vinnu með eigin hugmyndir.

Verðlaun NKG

Fyrstu verðlaun er iPad og þriðju verðlaun Bamboo teikniborð í boði Samtaka iðnaðarins og Epli.is. Í önnur verðlaun er glæsilegt námskeið í tölvuleikjaforritun frá Skema.is. Auk þess fá 12 stigahæstu þátttakendurnir ferð í Fab Lab í boði Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og gjafabréf í Háskóla unga fólksins í boði Háskóla Íslands.

Fleiri fréttir