Króksbíó í bestu gæðum

Ný sýningarvél af fullkomnustu gerð er komin í Króksbíó á Sauðárkróki og leysir þar með af hólmi úrelta tækni þar sem 35 millimetra filman réði ríkjum. Filmuvélin hefur þjónustað bíógesti á Sauðárkróki í áratugi en myndir eru ekki lengur fáanlegar nema stafrænar.

-Þetta gerir okkur kleift að frumsýna myndir á sama tíma og annarsstaðar á landinu í bestu gæðum, segir Sigurbjörn Björnsson bíóstjóri og mun veislan byrja strax annan í jólum þegar Hobbitinn verður tekinn til sýninga.

Meðal annarra mynda sem brátt verða sýndar í Króksbíói eru Skyfall, The Twilight saga, Rise of the Guardians,  og Life of Pi Sammy 2 og Jack Reacher.

Á Facebooksíðu Króksbíó segir að nýju græjurnar hafi verið prufukeyrðar í gærkvöldi og virkað frábærlega.

-Þá er allt orðið klárt fyrir Hobbitann og allar hinar myndirnar sem við ætlum að sýna ykkur um jól og áramót, segir ennfremur á síðunni.

Fleiri fréttir