Króksbrautarhlaupið á morgun
Á morgun laugardag 22. september lýkur sumarstarfi Skokkhópsins á Sauðárkróki með hinu árlega Króksbrautarhlaupi. Fólk velur sér þá vegalengd sem það ætlar sér að leggja að baki og hleypur á Krókinn á brautinni milli Varmahlíðar og Sauðárkróks.
Að sögn Árna Stefánssonar sem haldið hefur utan um hópinn frá stofnun hans verður hlaupið tileinkað Stefáni Jökli Jónssyni og fjölskyldu að þessu sinni en hann hefur átt við erfið veikindi að stríða. –Við vonumst til að safna dágóðri upphæð þar sem fyrirtæki í bænum hafa heitið á hlauparana, segir Árni og vill koma því á framfæri að allir séu velkomnir að taka þátt. –Hægt er að hlaupa, ganga, hjóla eða koma sér áfram á annan hátt til að vera með, segir Árni.
Boðið er upp á rútuferðir frá Sundlaug Sauðárkróks kl. 9:30 fyrir þá sem lengst fara og svo aftur kl. 10:30 fyrir þá sem velja sér styttri vegalengd. Rútugjaldið er þúsund kall sem rennur beint í söfnunina þar sem Suðurleiðir aka án gjaldtöku. Að ögn Árna verður öllum boðið í ávaxtasalat og léttan drykk á eftir hlaup og ítrekar að hann vilji sjá sem flesta taka þátt.
Árni segir að æskilegt sé fyrir hlaupara að klæðast áberandi fatnaði og ferðast á móti umferðinni. Það á líka við um hjólafólkið þegar það hjólar samsíða hlaupurunum þó svo það stríði gegn reglum en það sé gert til að bílar eigi greiða leið framhjá þátttakendum. Árni segir að hægt sé að heita á hlauparana fyrir hvern farinn kílómetra en í fyrra voru um 1000 km lagðir að baki. Þá vill Árni minna á söfnunarreikning Stefáns Jökuls en hann er:
0310-13-820581 kt. 211078-5299.
Allar upplýsingar um hlaupið veitir Árni í síma 8643959.