Króksmótið fer fram um helgina
Nú flykkjast ungir og efnilegir knattspyrnukappar á Krókinn því Króksmótið hefst í fyrramálið með setningarathöfn kl. 8:30 en þá eiga allir þátttakendur að mæta á völlinn næst íþróttahúsinu og fylkja liði í skrúðgöngu inn á íþróttaleikvanginn. Fyrstu leikir hefjast kl. 9:30.
Veðrið skiptir alltaf talsverðu máli á svona knattspyrnumóti og það er útlit fyrir bæði góðar og vondar fréttir fyrir laugardaginn; góðu fréttirnar að það verður hlýtt en þær vondu að það er spáð all nokkrum vindi og rigningu með köflum. Veðurstofan gerir ráð fyrir að vindur gangi niður þegar líður á laugardagskvöldið og það hitni svo enn frekar á sunnudaginn eða um 18 stig og litlar líkur á regni.
Þeir sem vilja kíkja á dagskrá Króksmóts 2012 geta smellt hér og svo er hægt að hita upp fyrir mótið með því að kíkja á þetta fína myndband sem Tindastólsmenn settu saman með myndum frá Króksmótinu 2010.
http://www.youtube.com/watch?v=kLmLFVs_uuY